Plebbinn..

06 janúar 2007

Takk Tedda mín, svona er að eiga blender og matvinnsluvél. Það fer bara allt í matvinnsluvélina. Alveg saman hvað það er!

Morgunmatur.... maukaður... hádegismatur... maukaður... kvöldmatur... maukaður... já nei, þetta er meira svona Jóhannes!

Við mamma fórum í leiðangur í dag. Hollt að fara og eiga svona daga með mömmu. Hlæja með henni, hlæja svolítið að henni... bara þetta vanalega sem maður gerir með foreldrum. En jæja, við erum að skanna búðir með íslenskri fatahönnun. Þið vitið, Skólavörðustígurinn er fullur af þeim! Fyrst fórum við inn í verslun handprjónasambandsins. Þar eru seld föt með aðaláhersluna á bull, nei ég meina ull... ok ok.. l-úði, ég veit... varð bara að leyfa honum að fljóta með.

Anyway, ég fékk góð viðbrögð við hugmyndinni minni um að koma með eina kápu eða svo og setja þar upp. Fá þær til að selja fyrir mig. Sniðugt. Svo gengum við aðeins lengra niður Skólavörðustíginn, kíktum inn í nokkrar búðir, og fórum á endanum inn í eina virkilega góða. Virkilega flottar og góðar vörur, smart hönnun, við skoðum og skoðum... Afgreiðslustúlkan var orðin svolítið forvitin að vita hvað við vildum, á endanum erum við farin að spjalla um að ég hafi lært saumaskapinn og fleira. Svo segir hún allt í einu.. "kanntu að sauma?". Voða hissa eitthvað. Eftir smá spjall skilst mér að það vanti ALLA hönnuði saumakonu og hún hleður á mig nafnspjöldum. Og núna, vantar mig bara innblástur og kjark til að skrifa þessum konum.

Og hann fæ ég.. með því að hanga á netinu og horfa á You, me and Dupree...

A.

28 desember 2006

Kominn tími á póst?

Athugið! 24 ára dömuklæðskera vantar vinnu, næstum við hvað sem er, frá og með 1. mars. Vinnutími 8-14. Hlýtur að geta rakað saman meðmælum, ef ekki, þá andmælum.

Anna.

15 ágúst 2006

Jæja, kominn stór og stæltur strákur! Jóhannes Þór Hjörleifsson! Erum komin heim en erum í smá einangrun. Á að liggja mikið eftir keisarann þannig að miklar heimsóknir verða að bíða betri tíma. Enda njótum við þess að kynnast nýja fjölskyldumeðlimnum algerlega ofan í tær. Stöndum okkur að því að stara á hann tímunum saman. Enda yndislegur og heimsins fallegastur.

Hann er vær og góður og sefur eins og ljós. Er að mjaka inn myndum á heimasíðuna hans. Kíkið á þær, www.barnanet.is/krakkaormurinn

Kveðjur úr Kvíaholti.

Anna.

08 ágúst 2006

Ekkert að gerast, engin breyting síðan í síðustu viku. Bókuð í gangsetningu á fimmtudagsmorgun kl.9:00.

Nei krakkar, við förum ekkert að fara út í eitthvað svoleiðis vesen.. Allir að senda alla sína fæðingarengla og útvíkkunarstrauma af stað í Kvíaholtið. Látum ekki sjást hvað við erum slow hérna á heimilinu.. við erum svoooo slow að það þarf að setja okkur af stað í svona lagað?!?

Let the games begin.

A.

Pleehhh.. Ég virðist bara ætla að vera Anna í orlofi í sumar. Hélt reyndar að þetta myndi verða FÆÐINGAR orlof en það er frekar erfitt að fara í fæðingarorlof ef barnið neitar að fæðast! Fer í línuritið á eftir. Sjáum hvað það segir okkur... Annars er fullt tungl 9.ágúst, tungl næst jörðu 10.ágúst (þegar handlagni heimilisfaðirinn fyllir 27 vetur..) og stórstreymi 11.ágúst. Þetta fer aaaalveg að koma!

Fórum í gær í letikasti út að borða á veitingahúsi Landnámssetursins. Það var mjög huggulegt, fékk mér pasta með tómat og hvítlauksbrauði. Mæli hiklaust með þeim stað og sýningunum sem þar eru! En það eru sko ekki merkilegustu tíðindin! 3 borðum frá okkur sat engin önnur en Hollywood leikkonan Cate Blanchett, Galadriel sjálf úr Lord of the Rings! Með "ekki alveg jafn myndarlega" manninum sínum og tveim börnum. Frekar súrrealískt að vera þarna og gjóa augunum til hennar þegar ég stóð upp og fékk mér vatnsglas. Þá fór hún nefnilega að útskýra fyrir börnunum sínum að ég væri með barn í maganum... Svona er maður svo sveitó að maður hugsar "hey, frægasta konan á svæðinu tók eftir mér? Spikfeita sveitalúðanum sjálfum!?"

Sniðugt á Íslandi.

A.

05 ágúst 2006

Jæja, það lítur nú út fyrir að Eyjólfur ætli að tapa í veðbankanum eins og svo margir hafa gert... eða eins og maðurinn söng "no beer today...", eða var það mjólk? Skiptir litlu.

Jæja, sófinn og sudoku kallar.. Það má nú alveg giska á nýjan dag í bankanum, enda ekkert annað að gera í biðinni en að lúðast smá!

A.

04 ágúst 2006

Jæja, var í skoðun í dag og ljósmóðirin sagði " að ferlið væri komið í gang"! Þannig að nú þrammar maður um gólf og bíííííííður eftir verkjunum. Hefur maður einhverntíman beðið eftir mesta sársauka lífs síns? Er maður endanlega orðinn geðveikur?

Nú langar mig að lesa bók. Ekki oft sem mig laaaangar að lesa (eða bara skoða myndirnar) í bók.. en þegar ljósmóðirin sagði við mig í dag "þú ert komin með 2 í útvíkkun" þá datt mér í hug bókin "konur með 1 í útvíkkun fá enga samúð". Hvað fá þá konur með 2?

Verslunarmannahelgarbarn! Gæti verið að Eyjólfur fái allan bjórinn/breezerinn fyrir sitt gisk í veðbankanum... Þetta verður allavegna þjóðhátíðarbarn! Og NEI, tillagan hennar Önnu Heiðrúnar um nafnið Þjóðólf var felld!

Keep you posted.
Anna

01 ágúst 2006

DÚDDÍRÚDDÍRÚUU... TRALLALLALLALLAA....

Best að.... bóna bílinn?

Urr...A.

30 júlí 2006

Dúddírúddírú.. trallallallalla...

Best að þrífa gluggana að utan...

A.

29 júlí 2006

Nú þegar maður situr bara og bíður þá fer maður ósjálfrátt að hugsa um hvernig þetta á eftir að vera, svona fæðing.. hvernig byrjar þetta? Er þetta eins og í bíómyndunum þar sem konan stendur og gargar á manninn sinn "My water broke!" og allt fer í panik og henni er "rushed to the hospital" maðurinn náttúrulega ennþá með henni í sjúkrabílnum og að hjálpa henni að gera einhverjar "inn inn út" öndunaræfingar þannig að hana langar ábyggilega til þess að kýla hann. Mig langar allavegna alltaf til að kýla þessa menn þegar ég sé svona bíómyndir.. bara fyrir hönd móðurinnar...

Svo þegar hún er komin á spítalann þá er alltaf alveg heilmikið kaos af fólki í grænum sloppum og allt einhvernveginn í stressi. Ekkert vinalegt spítalaumhverfi þar með ró og næði á sængurkvennadeild. Jæja, konunni er alltaf skellt á bakið og fæturnir í stoðir! Og svo er öskrað "PUSHH!" svona þrisvar til fjórum sinnum og allt í einu, þá heyrist barnsgrátur. Blessað barnið sem notað var við gerð þessarar myndar er hins vegar 8 kílóa nokkurra mánaða drengur... Barnið er reifað og lagt til móðurinnar og allir gráta! Happy ending!

Er það ekki svona sem þetta er örugglega? :)

Kannski ég fari niður í Borgarnes og leigi nokkrar "Look who´s talking" myndir til að fá þetta alveg á hreint. Munið þið eftir þeim? Ég hef ekki séð þær í laaaangan tíma.

Já Anna þetta var góð hugmynd Anna, gerum það!

Ekki gleyma veðbankanum hér að neðan. Úrslitin verða spennandi!

A. og litli a.

28 júlí 2006

Mér finnst að við eigum að starta smá veðbanka.. svona eins og í bíómyndunum.. Og þeir sem velja réttan dag fá eitthvað lítilræði frá hinum. Einn öl eða svo... ok ok maja, eða breezer þá!?

Koma svo fólk.. velja sér dag... who will be the lucky one!

Maja, 2.ágúst.
Ríkey, 2.ágúst...

Fleiri?

A.

26 júlí 2006

Eru fleiri en ég sem eiga erfitt með að láta tímann líða hraðar en hann gerir.. maður hefur svona á tilfinningunni að hver mínúta sé í raun 10 mínútur? Kannast einhver við þetta?

Eða er ég bara orðin geðveik...ari.

A.

23 júlí 2006


4 dagar eftir! Posted by Picasa

Jæja, loksins er Kvíaholt orðið að menntaheimili, komið internet og heimasími! Svona eins og hjá venjulegu fólki. Kisi er að verða frekar leiður því eftir að internetið kom hafa fáir nennt að spjalla við hann. Hann lagðist á lyklaborðið hjá mér. Ég náði hintinu.

Já, bara 4 dagar eftir. 14 stiga hiti og ég er að KAFNA. Yndislegt veður búið að vera. Þvílík hitabylgja búin að vera og Hjörleifur sést sjaldan enda heyskapartíð með góðum þurrki. Þeir eru einmitt að plasta seinustu rúllurnar í bili í þessum töluðu orðum. Má skrifa á bónus miðann: "1 stykki 60 hestafla traktor fyrir seinni slátt." Það er ágætt að vera búinn að heyja fyrri törnina áður en að barnið kemur. Það á að koma á fimmtudaginn, en .... það held ég að sé bara kjaftæði. 42 vikur here I come!

Mamma og pabbi voru á ferðinni um helgina. Mamma kom keyrandi niður afleggjarann á sendibílnum og kippti kerrunni aftan úr heima á hlaði eins og hún hafi aldrei gert annað. Hörkukelling alveg! Hún var nú alveg að fara að kvarta þegar hún horfði á járnamottur sem eiga að fara í plötuna á bústaðnum. Blessunarlega þá komu Annelise og Ragnar í heimsókn. Ragnar tók motturnar með pabba.. mamma 1 stig - járnamottur 0 stig!

Fór á bændamarkað í dag og keypti mér tátiljur og ferskt hrefnukjöt, ætli það verði gott grillveður á morgun?

Ble. A.

27 júní 2006


junibumban... Posted by Picasa

Jæja, loksins drullast maður til að fara á næsta bæ og fá að fara á netið. Hér er reyndar enginn heima þannig að það er heilmikið næði. Tíkin Týra og kötturinn Flón halda mér félagsskap. Að ég tali nú ekki um foreldra mína... :) Búið að vera heilmikið að gera en samt, er að reyna að vera dugleg að slappa af og leggja mig og vera ekki á útopnu allan daginn. Þetta er eins og um jólin. Jólin koma samt þó maður sé ekki búinn að þrífa bak við bökunarofninn eða bak við málverkin. Barnið kemur þó ég sé ekki búin að gera allt tipp topp og þvo átta sinnum sömu barnafötin svo þau séu voða obbo fín þegar nýjasti fjölskyldumeðlimurinn mætir á svæðið.

Amma á leiðinni í kaffi. Má ekki vera að þessu, best að kjaga aftur niður afleggjarann. Þessi mynd var tekin í byrjun Júní. Þá komin 33 vikur ca.

A.

07 maí 2006

Jæja, langur dagur að kveldi kominn og við komin með hálfan fótinn inn í Kvíaholt. Já, Guðný, óðalið heitir Kvíaholt! Ég dró mömmu hálfa undan eldhúsinnréttingunni núna rétt fyrir kl.23 til að koma í yndislega kjötsúpu hjá tengdó og svo er ferðinni heitið í bælið. Það er allavegna búið að skrúfa saman nýja rúmið, tengja 1 klósett og setja ísskápinn í samband. Við hjónaleysin ætlum að sofa fyrstu nóttina núna aðfaranótt sunnudags.. það á víst að vera fyrir áframhaldandi velfarnaði í húsinu. Eða eitthvað svoleiðis. Við ætlum allavegna að fara eftir þessari hjátrú. Ég segi nú eins og haft er eftir afa heitnum í Jörfa. " Ég er ekki hjátrúarfullur.. en ef eitthvað kemur fyrir þá er það allavegna ekki þessu um að kenna".

Get ekki meir.. komin súpa..

Ble. A.

14 apríl 2006


Bumbubúinn! Posted by Picasa

Maður ætti kannski að vara viðkvæma við svona myndum. Þetta er tekið með þrívíddarsónar núna á 23.viku meðgöngu. Mörgum finnst þetta svolítið spúkí og maður þarf aðeins að venjast þeim.. en þessi finnst mér vera flottust. Þarna er (fyrir þá sem geta í raun séð eitthvað út úr myndinni :) ) er barnið með aðra hendina undir kinninni og hina hendina að nudda augað. Þetta var einmitt síðasta myndin sem var tekin í sónarnum þannig að blessaði bumbubúinn var orðinn svolítið þreyttur á þessu öllu saman. Við leyfðum barninu samt að halda smá prívasíu og vildum ekki vita kynið.

Um síðustu mánaðarmót þá skelltum við okkur í óvænta ferð til Danmerkur. Það kom okkur nú reyndar ekkert á óvart en fólkið úti vissi ekki af ferðum okkar fyrr en við allt í einu stóðum inni í stofu hjá Gústa! Gústi og Berglind voru með í plottinu og fóru með þetta eins og mannsmorð! Sem gerði þetta allt vitaskuld miklu skemmtilegra... en annars var þetta nú bara gert óvænt til að sjá svipinn á Maríu! hahaha.. Virkilega skemmtileg ferð sem bjargaði algerlega andlegri heilsu og vellíðan í marga marga daga á eftir.

Svo komum við nú heim frá Danaveldi og þá tók við basl og tímahrak í þessu blessaða húsi. Hjörleifur ásamt dyggum ættingjum sem alltaf standa við bakið á manni unnu dag sem nótt til að koma þessum BLESSAÐA gólfhita niður áður en múrarinn myndi mæta. Múrarinn og píparinn mættust á afleggjaranum eftir langa og stranga nótt.. Þá var flotað yfir gólfið og núna, as we speak eða write eða eitthvað þá eru menn frá áhugamannafélagi um frívinnu mættir til að flísaleggja! Þ.e. pabbi og Kári bróðir. Óli bróðir er í því að setja upp eldhúsinnréttinguna og Hjörleifur er handlangari auk þess að vera málari, spaslari, flísari og annar ari eftir þörfum manna þarna niðurfrá. Ég kem svo við þarna stundum og stend fyrir og segi brandara. Þetta er alveg frábært að sjá þetta ganga svona hratt fyrir sig núna. Ég set inn fleiri myndir síðar af þessum gjörningum öllum saman. Kannski maður þyrfti að fá sér svona síðu eins og Eyfi bróðir er með, þannig að maður getur sett inn smá albúm í einu?

En allavegna, allir brosandi og glaðir að bíða eftir vorinu hér á bæ.

Anna.

25 mars 2006


Hálfbakað... Posted by Picasa

19 mars 2006


Jæja, loksins kemur nú mynd af sveitasetrinu. Þetta er nú bara mynd af nýju fínu loftaklæðningunni sem Hjörleifur og Maggi eru búnir að vera að setja upp. Málarinn er búinn að vera voða duglegur líka. Húrra fyrir þeim!

Annars er lítið búið að gerast hjá okkur sko annað en loftaklæðning og hor og hósti. Er að sníða í fermingarkjól svona inn á milli. Svo er maður náttúrulega alltaf með helling af víkingahugmyndum sem þarf að koma niður á blað...

Sáuð þið formúluna áðan?? Hnuss... ég er sko alveg hundfúl með bílamálin hjá Raikkonen! Fussumsvei!

Verðum í bandi.

A.

p.s. Vigdís, ég bíð spennt eftir bréfi frá þér! Posted by Picasa

15 mars 2006

Jæja, þá er maður kominn aftur upp á afturlappirnar. Þetta var nú meira vesenið að fá svona flensu. Maður var gersamlega úti í heila viku! Sýking í augum, hálsi og svooooooo mikið hor! Er reyndar ennþá að hósta eins og gamalmenni en það fer vonandi bráðlega.

Við fórum í sónar á mánudaginn. Bumban var svo spennt yfir þessu öllu saman að maður var vakinn kl.6 um morguninn með spörkum og látum. Það kom allt vel út og áætlaður komudagur er 27.júlí. Bara 4 og hálfur mánuður eftir...

Hjörleifur fékk óvænta aðstoð núna í vikunni. Maggi frændi er kominn heim og verður að hjálpa Hjörleifi núna næstu vikur allavegna. Það er búið að kaupa gríðarlegt magn af loftaklæðningu og það er verið að setja hana upp. Hún er rosalega flott. Virkar mjög vel með þessari lofthæð! Málarinn er að klára að grunna og vinna veggi og loft. Þetta gengur allavegna áfram en ekki afturábak og það er fyrir mestu! Þeim sem vantar byggingarvinnu um páskana mega gjaaaaarnan koma í heimsókn. Ég skal hafa nóg af kaffi og kleinum fyrir heilan her manna!

Best að fara að halda áfram að vinna.. Börnin skamma sig ekki sjálf..

A.

07 mars 2006

Sko... hér kemur fréttaskýring helgarinnar.

hóst hóst..
hor að leka..
snýt snýt..
spraut spraut.. (neseril)

Endurtakið svona 3000 sinnum.

Já, myndir.. ef ég hósta ekki á þær og gef tölvunni flensu þá get ég kannski mögulega sett þær inn núna í vikunni.

Sjáum til.

(hóst)A.

01 mars 2006

Já María mín... það er ekkert grín að vera bara plebbi með puttann upp í bíííííííííppp... :)
Ég vona nú innilega að nafna mín sem og stóra systir hennar láti nú hafa svolítið fyrir sér, enda af góðu kyni komnar. Ég er endalaust að finna eitthvað skemmtilegt til að senda Vigdísi. Maður er gersamlega fastur í að hugsa alltaf til hennar þegar maður labbar framhjá einhverju glitrandi eða skemmtilegu í búðunum.

Málarinn er að koma í dag. Hann er að fara að spasla í ÖLL skrúfugötin í ÖLLU húsinu. Ekki alveg viss um að hann viti hvað hann er að fara út í? Ég sé þetta annars alveg fyrir mér.. : hann gengur inn um dyrnar.. Hjörleifur stendur við hliðina á honum og skellir snögglega í lás svo málarinn hrekkur við.. "hvað var þetta?" spyr hann... "þetta var bara hundurinn" segir Hjörleifur með loðinni röddu.. "gakktu í bæinn vinur...." og maður heyrir drakúlahláturinn hljóma um óklárað og hrátt húsið...

Já, bubbi byggir er hot segið þið? Tja... já.. siðferðisvitund mín bannar mér innilega að ræða þetta meira.

Farin aftur inn á deild. Börnin eru öll í búning í dag, vitaskuld, enda öskudagur... það eru svona 15 Spidermanstrákar og 20 sollu stirðu stelpur. Restin er prinsessur og já, einn er í heimatilbúnum. Lopapeysa af fullorðinni manneskju með afklipptar ermar. Baggaband um hann miðjan því peysan er svo stór og svo er ermaafklippan notuð sem húfa. Svo er hann með svakalega ljóta grímu. Hann er tröll! Hann er snillingur.

Ég er álfadís með vængi og sprota. Og freknur. Ég er líka snillingur.

Pleh..

A.

27 febrúar 2006

Já, þetta er nú bara ekkert grín, maður er bara kominn aftur í bloggið eins og alvöru tjelling!

Lífið gengur sinn vanagang hérna eins og annarsstaðar í heiminum. Hjörleifur byggir og byggir, hann er sko miklu flottari en þessi þarna bubbi byggir. Allavegna meira sexy! Það gengur ágætlega með húsið. Áfram en ekki afturábak segi ég, það er fyrir mestu. Nú eru allir veggir í íbúðinni klæddir og tilbúnir. Þá tekur við loftavinna. Málarinn kemur að spasla í vikunni, ég held ég þurfi að kaupa svona gám af spasli í öll þessi skrúfugöt??? Hjörleifur kemur vanalega heim á kvöldin svona rétt fyrir 10 fréttirnar. Bara svona til að ná veðurfréttunum. Það var eins gott að hann fékk handa mér kisu, ég næ að halda mér vakandi alveg fram yfir guiding light.. en ekki mikið meira en það.

Maginn stækkar og stækkar, ég er farin að kjaga eins og hæna og láta öllum illum látum eins og sannri þungaðri íslenskri konu sæmir. Ég er nú ekki farin að grýta Hjörleif með innanstokksmunum þannig að það er plentý eftir enn. Fer í skoðun eftir skoðun eftir skoðun í mars. Það er varla vinnufriður fyrir öllum þessum skoðunum? Hefur einhver skoðun á þessu?

Við fengum raftækjatilboð frá Einari Farinnísveit. Mjög gott tilboð. Þar með voru þurrkari/þvottavél/ískápur/frystiskápur/uppþvottavél og bla bla bla.. Ég fór í síðustu viku til Reykjavíkur og fékk að sækja ísskápinn sér. Svona á undan öllu hinu. Og Guuuuuuuuð hvað það er mikill lúksus að geta keypt í meira en eina máltíð í einu. Ég var daglegur gestur í bónus en núna fer ég varla einu sinni í viku... og bara ef ég nenni! Þið vitið hvað ég meina þau sem sáu ískápinn gamla!

Já, tilgangur ferðarinnar til Reykjavíkur var að fara í göngugreiningu. Og viti menn... Haldiði að Anna sé ekki bara stutt....heldur líka MIS stutt.. Annar fóturinn er styttri en hinn. Mér finnst hljóma betur að annar fóturinn sé LENGRI en hinn þannig að héðan í frá notum við það orðatiltæki.

Jæja, við erum ekki með netið heima þannig að þetta verður eitthvað gisið blogg til að byrja með.
Eyfi: amma og afi á Árbergi báðu að heilsa þér og ykkur.

Lifið heil.

A.

23 febrúar 2006

Jæja, risin úr rekkju, úr dvala, frá dauðum.. eða eitthvað svoleiðis.

Ný og endurbætt Anna komin á markað, in stores this weekend.

Ég lifi enn.

A.